Endurhönnun á Maclantic

Sælir kæru Applenotendur og áhugamenn, svo er mál með vexti að mig langar mikið til að breyta um útlit á Maclantic.com og byggja vefinn á öðru en Rapidweaver html færslum, þ.e. frekar á SQL gagnagrunni og margt fleira.

Ég persónulega er enginn vefhönnuður í mér, en ég hef í raun bara lært með því að fikta í CSS, PHP og HTML og hef getað reddað mér þar.

Hugsunin var að byggja vefinn á t.d. WordPress eða álíka og hafa útlitið þægilegra. Mér datt því í hug að ég gæti fengið ráð frá einhverjum ykkur lesendum sem kunnið á þessi mál.

Ég er ekki að hugsa um „template“ sem eru nú þegar til staðar í WordPress heiminum, heldur sérhannað útlit sem myndi henta þessum vef best.

Það væri vel þegið ef einhver gæti aðstoðað mig eða gefið mér ráð varðandi þetta, og jafnvel þeir sem vinna við vefhönnun og allt í kringum það mega endilega senda mér tilboð (smellið á „hafa samband“ hér að ofan).

Með fyrirfram þökkum, Björgvin Björgvinsson.


Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!