Apple kynnir nýjan skjá

ZZ23BC85A9.png

Eftir miklar breytingar á MacBook og MacBook Pro vélunum í dag hefur Apple einnig gefið út nýjan 24″ skjá sem virðist taka við núverandi 20″, 23″ og 30″.

Það sem gerir skjáinn virkilega skemmtilegan er að hann er með iSight, hljóðnema og innbyggðum hátölurum.

Þar að auki er MagSafe-tengi (til að hlaða fartölvur), USB-tengi og Mini DisplayPort (sem er nú í öllum fartölvum Apple).

Lesið nánar um skjáinn á www.apple.com/displays

4 svör við “Apple kynnir nýjan skjá”


  1. Gravatar Icon 1 Viktor Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 20:50

    Algjör snilld! Búin að vera leita að góðum skjá og ég held að þessi verði hreinlega fyrir valinu!

    Hvað halda menn annars hér að svona skjár muni kosta á Íslandi? Einhverjar getgátur ?

  2. Gravatar Icon 2 Tholli Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 22:21

    Glaaaaatað!!!!! Var búinn að gera mér vonir um að Apple myndi nýta sér “resolution independent” fítusinn sem er í Leopard og nýja módelið af cinema display væri 160 dpi í stað 72 dpi og skara þarafleiðandi framúr í gerð pro graphics skjáum. Iphone er t.d. með 160 dpi skjá. En í staðinn kemur apple með svona consumer drasl með innbyggðum hátölurum ??? Hvað er málið? Erum við komin aftur til 1997? Ef þetta er stefnan hjá Jobs, afhverju steig hann ekki skrefið til fulls og framleiðir gripinn í 32″ og 40″ settum líka og selur sem tv sett sérstaklega compatible við Apple TV?

    Ps. Viktor, á bilinu 80.000 – 800.000, fer eftir genginu :(

  3. Gravatar Icon 3 Tholli Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 22:23

    Mig langar samt í þennan skjá, en ég bjóst við meira, stærra og betra!

  4. Gravatar Icon 4 Baldur Þriðjudagur 14. október 2008 kl. 23:56

    Segið mér, hvað er eiginlega málilð hjá apple að koma með þennan skjá aðeins í glans útgáfu? Lýtur vel út í búðinni en til lengdar þá getur þetta verið þreytandi. Ekkert pirrar mig meira en glampar á skjá. Beið virkilega spenntur eftir nýjum skjá en verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!