
Í dag hefur Apple kynnt til sögunnar endurhannaðar MacBook og MacBook Pro með sama strúktúr og í MacBook Air. Tölvurnar eru þ.a.l. mun þægilegri, sterkari, einfaldari og úr ál. Lítið mál er að nálgast harðan disk tölvunnar og skipta út vinnsluminni.
Þar að auki hafa allar tölvurnar háglansskjá með LED baklýsingu. Þetta gerir skjáinn mun bjartari og endingarbetri.
Byltingarkennd grafíktækni frá NVIDIA var einnig kynnt. Um er að ræða samnýtt skjákort með heitið 9400M sem gefur allt að 500% betri afköst en Intel tæknin. Þessi tækni verður flutt í allar fartölvurnar, þ.e. MacBook, MacBook Air og MacBook Pro. Hin síðastnefnda fær þar að auki NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt kort með allt að 512MB skjáminni, en tölvan skiptir sjálfkrafa yfir í öflugra skjákortið þegar þess þarf. Þetta sparar líftíma rafhlöðu til muna.
Allar MacBook (MacBook, Pro og Air) línurnar fá nýtt tengi sem kallast „Mini Display Port“ en það er opinn staðall og styður DVI, Dual-link DVI og VGA. Þetta einfaldar mjög mikið fyrir notendum og gerir þeim kleift að kaupa tengi sín ekki bara frá Apple heldur öðrum framleiðendum.

Nýr snertiflötur er komin á MacBook og MacBook Pro sem er með „multitouch“ tækni og hefur hinn hefðbundni hnappur verið fjarlægður. Yfirborð snertiflatarins er úr gleri og því þægilegra fyrir fingurna (mýkra). Nú er t.d. hægt að skipta á milli forrita með því að nota fjóra fingur.
Öll tengi eru nú á vinstri hlið MacBook Pro (eins og á MacBook) og nýr hnappur á báðum línum sem segir til um hleðslu á rafhlöðu. Geisladrif er þá komið hægra megin á MB Pro eins og á MacBook.
Hér eru nánari tæknilegar upplýsingar um vörurnar (örgjörvi, vinnsluminni osfrv.)
MacBook

$999 – Gamla gerðin
- Eldra útlit / plast / hvít
- 2.1GHz Core 2 Duo
- 1GB vinnsluminni
- 120GB HDD
- Superdrive
- Intel GMA X3100
$1299 – Ný/ál
- 2.0GHz Intel Core 2 Duo
- 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
- 160GB SATA diskur (5400 rpm)
- 8x SuperDrive
- NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
- 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
$1499 – Ný/ál
- 2.4GHz Intel Core 2 Duo
- 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
- 250GB SATA diskur (5400 rpm)
- 8x SuperDrive
- NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
- 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
MacBook Pro

$1999 – Ný/ál
- 2.4GHz Intel Core 2 Duo (3MB L2 Cache)
- 2GB (tveir 1GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500); allt að 4GB
- 250GB SATA diskur (5400 rpm)
- 8x SuperDrive
- NVIDIA GeForce 9400M graphics processor
- NVIDIA GeForce 9600M GT með sjálfstæðu 256MB skjáminni
- Eitt FW800 tengi, 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
$2499 – Ný/ál
- 2.53GHz Intel Core 2 Duo (6MB L2 Cache)
- 4GB (tveir 2GB SO-DIMMs) – 1066MHz DDR3 SDRAM (PC3-8500)
- 320GB SATA diskur (5400 rpm)
- 8x SuperDrive
- NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
- NVIDIA GeForce 9600M GT graphics processor (512MB)
- Eitt FW800 tengi, 2 USB tengi, Gbit Ethernet, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
$2799 – Gamla gerðin
- 2.5GHz Intel Core 2 Duo
- 4GB (tvö 2GB SO-DIMMs)
- 320GB SATA diskur (5400 rpm)
- Skjár með 1920×1200 upplausn
- 8x SuperDrive
- NVIDIA GeForce 8800 512MB
MacBook Air

$1799 – Uppfærð
- 1.6GHz Intel Core 2 Duo
- 2GB of 1066MHz DDR3 SDRAM onboard
- 120GB SATA diskur (4200 rpm)
- NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
- Eitt USB tengi, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
$2499 – Uppfærð
- 1.86GHz Intel Core 2 Duo
- 2GB of 1066MHz DDR3 SDRAM onboard
- 128GB SSD diskur
- NVIDIA GeForce 9400M með samnýttu 256MB skjáminni frá vinnsluminni
- Eitt USB tengi, Mini DisplayPort (styður DVI, Dual DVI og VGA)
Nánari upplýsingar á Apple.com.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Eitraðar vélar. Mig langar í nýju Pro vélarnar. 4 Gig af innra minni, nú erum við að tala saman
langar í nýja skjáinn og MBP þetta er örugglega þær flottusstu á markaðnum í dag. seigi nú bara eins og hann gauti…nú erum við að tala saman
Is Mac OS X available “á Íslensku”? I’m learning Icelandic and want to buy one of these new Macs so I was just wondering.
Fátt er svo illt, að einugi dugi, utan um Windows.
♪Eurobandið – Fullkomið líf♪
Djofs rugl ad thad se bara bodid uppá glansskjá.
Baedi i nya MBP og ACD.
AAAAAAARRRRRRGGGGGGG!!!!! MIG LANGAR ÍÍÍÍÍÍÍÍ!!!!!
Flottar breytingar fyrir utan að halda ekki möguleikanum á möttum skjá. Myndi persónulega ekki skipta mínum út fyrir glans.
En ÁL eigum við að ræða það eitthvað hvað það er töff
Hvað haldið þið að nýja MacBook aluminium tölvan myndi kosta á Íslandi og hvenær er vitað að hún kemur til landsins! Langar of mikið í hana en vil ekki versla á netinu og fá hana frá útlöndum.