Nýjar MacBook með öflugara skjákorti

Eins og hefur komið fram áður þá verður stór fartölvukynning hjá Apple í dag og hefur ýmislegt lekið út frá Silicon Valley á síðustu dögum.

Í fyrri frétt er greint frá ýmsum spennandi uppfærslum á MacBook Pro en minna er vitað um MacBook – allavega hefur engin mynd farið út á netið eins og stendur.

Nýju vélarnar verða til í þremur gerðum eins og er í dag, en gera má ráð fyrir að ódýrasta gerðin verður tiltölulega ódýrari. Telja má að verðið á henni verði $899 eða $999 í stað $1099. Ódýrasta gerðin mun þá vera nánast óbreytt hvað varðar fídusa.

Stærri gerðirnar, $1299 og $1499, munu hafa 2,0GHz og 2,4GHz örgjörva ásamt 160GB og 250GB HDD. Báðar vélar verða með 2GB vinnsluminni.

Mikilvægasti hluturinn í þeirri uppfærslu verður ekki bara útlitsbreytingar heldur einnig að skjákortið verður mun öflugara heldur en það er í dag, en MacBook hefur þurft að sæta mikilli gagnrýni fyrir skjákort þess. Um er að ræða NVIDIA 9400M.

0 svör við “Nýjar MacBook með öflugara skjákorti”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!