
Eins og orðrómurinn sem hefur verið í gangi undanfarið bendir til er það nánast öruggt að Apple muni halda kynningu á nýjum iPod tengdum vörum í september mánuði.
Rétt eins og í fréttinni hér á undan er það Kevin Rose sem heldur því fram að kynningin muni verða þriðjudaginn 9. september næstkomandi en einnig telja þeir hjá ArsTechnica og Gizmodo að sú muni verða raunin.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Þá er bara eftir að stilla niðurteljarann sinn og horfa á hann þangað til.
á þriðjudegi að vana
hverjar eru líkurnar á mbp 9 sept
well… sumir segja að þessar septemberkynningar séu meira svona fjölskyldu/consumer stöff. Ekkert sem heiti eitthvað-pro komi þar við sögu. Svo segja sumir að MBP sé á grensunni.
Kynningarnar koma yfirleitt á óvart og oftast þægilega.
Mig er nú farið að lengja eftir nýjum MiniMac með nýjum örra og hdmi. Sumir segja þó að MiniMacinn sé dauður :O
Eins og sést á þessari síðu er margt komið á tíma:
http://buyersguide.macrumors.com/
Ég var að pæla í þessu með MBP..
Fyrst hugsaði ég að þetta yrði örugglega bara “silent update” daginn eftir en svo verður þetta örugglega update með útlitsbreytingum þannig að ég hef ekki hugmynd hvað þeir munu gera.
Myndi ekki segja að MacMini sé dauður, þó svo að það sé hægt að bæta hann verulega. Virðist vera mjög erfitt að fá þá keypta notaða en eigendur slíkra eru tregir til að selja sína vegna ánægju af græjunni.
kanski koma einhverjar nýjar fréttir varðandi iphone-inn. Best Buy mun amk byrja að selja hann 9. sept samkvæmt heimasíðunni þeirra.
Það vill svo til að ég verð í NYC einmitt þá… spurning um að taka smá kassmunní með sér…
Virðist vera staðfest af Apple núna.
http://arstechnica.com/journals/apple.ars/2008/09/02/apple-confirms-september-9-special-event-lets-rock