Nýir iPodar mjög bráðlega?

untitled image2.jpg

Tæknigúrúinn Kevin Rose hjá digg.com hefur tekið saman nokkur atriði í YouTube myndskeiði sem hann telur að Apple muni kynna einhverntímann fyrir lok september.

Hann nefnir eftirfarandi:

-Breytingar á allri iPod línunni

-Algjörlega ný hönnun á iPod Nano(sjá mynd) og smávægilegar á iPod Touch

-iPod spilarar munu lækka í verði

-2.1 software fyrir iPod Touch sem iPhone mun fá stuttu seinna

-iTunes 8.0 með miklum breytingum

Hægt er að sjá myndskeiðið hér.

8 svör við “Nýir iPodar mjög bráðlega?”


  1. Gravatar Icon 1 Agli Laugardagur 23. ágúst 2008 kl. 21:20

    Ég er alls ekki spenntur fyrir nýrri hönnun á iPodum, nema auðvitað að Hr. Ive komi mikið við sögu, en ég veit að hann myndi ekki láta sína iPoda líta út eins og mockupið hér fyrir ofan!!

    Ég ætla nú barasta rétt svo að vona að skjárinn verði ekki svona glossy eins og á þessari mynd!

    Mig hlakkar mig til að sjá iTunes 8!!

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Laugardagur 23. ágúst 2008 kl. 21:24

    Ég hlakka til að sjá iTunes 8. Sammála því.

    Annars finnst mér þetta mock-up ekki alveg nógu Apple-legt. En hver veit, ég hafði rangt fyrir mér hvað varðar nýja lyklaborðið ;)

  3. Gravatar Icon 3 Egill Laugardagur 23. ágúst 2008 kl. 22:30

    International iTunes?

  4. Gravatar Icon 4 Bjöggi Laugardagur 23. ágúst 2008 kl. 23:00

    Egill: nei, þetta mun allt vera land fyrir land vegna virðisauka.

  5. Gravatar Icon 5 espresso Sunnudagur 24. ágúst 2008 kl. 02:09

    og dreifingarréttar væntanlega.

  6. Gravatar Icon 6 Bjöggi Sunnudagur 24. ágúst 2008 kl. 08:35

    Amms

  7. Gravatar Icon 7 Snorrib Sunnudagur 24. ágúst 2008 kl. 09:00

    Ekki nógu Apple legur eins og Bjöggi sagði þarna.

  8. Gravatar Icon 8 Siggi Laugardagur 30. ágúst 2008 kl. 01:40

    Ég segi að þeir verði svona curved eins og iPhoneinn, semsagt á toppinum og botninum, ekki hliðunum.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!