
Munið þið ekki eftir Psystar OpenComputer sem átti að keyra OS X, vera úr venjulegum íhlutum, keyra breytta útgáfu af Leopard, vera ekki frá Apple og kosta miklu minna en alvöru Apple tölvur? Þetta hljómaði allt voðalega tæpt lagalega séð en samt sem áður er tölvan til og meira að segja seld í þónokkrum útgáfum. Nú hefur Apple loksins tekið sig til og kært Psystar. Ætli sagan sé þá endanlega búin eða munum við sjá Psystar tölvur úti um allt á komandi árum?




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Það var nú mikið….
Svona tryggir Apple að stýrikerfið þeirra verði aldrei leiðandi á markaðnum…
Sýnist þér Apple vera að leita að því, þ.e. að vera leiðandi á markaðinum? Aðal marginið hjá þeim er hardware og hefur alltaf verið.
Ef ég fengi mér turn tölvu þá yrði það líklegast frá þeim. Sé engan ástæðu til þess að fá sér mac pro ef það er hægt að fá samskönar tölvu sem er mun ódýrari.
Turnin fer hvort eð er inní skáp þá
Veit einhver hvað er í gangi með þetta? hver vann og svona(apple væntanlega)? ég forvitinn já!
Það kallast kæra þegar höfðað er opinbert mál með tilstuðlan Lögreglu en stefna þegar höfðað er einkamál.
Hér ætti fyrirsögnin að vera:
Apple stefnir Psystar
eða ennfremur
Apple höfðar mál gegn Psystar