Intel hefur í dag kynnt til sögunnar nýja tækni sem ber heitið „Centrino 2“ (kallað Montevina) en hún hefur að geyma mun hraðvirkari Penryn Core 2 Duo örgjörva, brautarhraða og samnýtt skjákort (GMA X4500). Þar að auki er stuðningur við WiMax, sem er í stuttu máli langdræg þráðlaus tækni.
Það sem gerir Centrino 2 „djúsí“ er að örgjörvahraðinn nær frá 2,26 uppí 3,06GHz með 1066MHz brautarhraða, en núverandi (sem Apple notar í fartölvulínur sínar; MacBook og MacBook Pro) nær hámark 2,8GHz og 800MHz brautarhraða.
Gera má sterklega ráð fyrir að Apple uppfæri fartölvur sínar með Centrino 2 tækni (og jafnvel fáum við að sjá endurhönnun), en gera má ráð fyrir uppfærslu á næstu mánuðum.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
0 svör við “Intel kynnir Centrino 2”