Þökk sé MCE Technologies er nú hægt að setja allt að 1TB af geymsluplássi í MacBook Pro. Lausnin byggist á því að skipta út geisladrifinu og setja þess í stað „OptiBay drive“ frá MCE, en það virkar eins og harðadiskbox sem hefur sama tengi og innbyggð geisladrif í MacBook/MacBook Pro.
Heppnir 17″ MacBook Pro eigendur geta því glatt sig yfir því að geta haft allt að 1TB (2x 500GB) fyrir aðeins $799 USD án vsk., en eigendur MacBook og 15″ MacBook Pro geta sett allt að 2x 320GB diska. Ástæðan er einfaldlega sú að núverandi 500GB fartölvudiskar (2,5″) eru örlítið of þykkir fyrir þær, þ.e. meira pláss er í 17″ MB Pro.
Tómt OptiBay hólf er á $99, en hægt er að fá þau með innsettum disk og utanáliggjandi box fyrir geisladrifið sem tekið er úr vélinni.
Gæta skal að aðgerðir sem þessar eru gerðar á eigin ábyrgð og rýfur neytendaábyrgð tölvunnar.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Athyglisverð þróun – margir beðið lengi eftir svona lausn.
Glætan að ég myndi vilja fórna optical drifi.
Akkúrat það sem mann vantar, enda nákvæmlega ekkert við geisladrif að gera í fartölvu…
Ég nota drifið í minni þegar ég þarf að setja hana upp. Það hefur gerst einusinni – þegar ég fékk hana. Get alveg verið með eitthvað external crap ofan í skúffu til þess.. svo bjóða MCE líka externam box fyrir slot-loading drifið sem maður tekur úr vélinni