
Í dag hefur iMac verið uppfærð og nú fáanleg í nokkuð öflugri útgáfu.
Vélin er nú með allt að 3.06GHz örgjörva og NVIDIA GeForce 8800 GS 512MB skjákorti.
Þær eru til í eftirfarandi útfærslum:
- 20″ iMac
- 2.4GHz, 1GB vinnsluminni, 250GB HD, ATI Radeon HD 2400 XT 128MB
- 2.6GHz, 2GB vinnsluminni, 320GB HD, ATI Radeon HD 2600 PRO 256MB
- 24″ iMac
- 2.8GHz, 2GB vinnsluminni, 320GB HD, ATI Radeon HD 2600 PRO 256MB
- 3.06GHz, 2GB vinnsluminni, 500GB HD, NVIDIA GeForce 8800 GS 512MB




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Loksins!!
Þessi verður keyptur um leið og hann er kominn á klakann!
nau nau nau fííínt.
orðrómurinn reyndist réttur
Ah hvað mig langar í dýrustu gerðina… *slef*
Spennandi!!!
Hringdi áðan í Apple IMC uppá að fá verð í stæðstu vélina. En þar á bæ voru þeir ekki komnir með neinar tölur varðandi þessa uppfærslu.
En þetta er efst á innkaupalistanum!
Já sama hér ég held að ég smelli mér á dýrustu týpuna right away
Mikið vildi ég samt að dollarinn væri 60kall núna.
Meh, er að spá í að fá mér bara dýrustu í sumar. ME WANT! =D
Er hægt að uppfæra skjákortið er maður er með 2.8 GHz gömlu útgáfuna?
@Óli Jón: nei því miður.. eða það lítur ekki út fyrir það.
@Haraldur: verðlistinn verður uppfærður í kvöld
Ohhh….
Ég vill Geforce 8800….
Munu minniskubbar í fyrri kynslóð hækka í verði þegar 800 MHz kubbarnir koma í búðir?
Er GS týpan ekki það alslappasta sem maður fær í 8800 línunni?
Það kemur mér mikið á óvart ef þessar nýju vélar verða dýrari en gömlu. Svona miðað við það að þær hækkuðu ekkert úti, og það er tiltölulega nýbúið að hækka alla iMac línuna vegna slæms gengis krónurnar, sem er bara búið að lagast síðan þá.
Annars er aldrei að vita hverskonar vitleysu mönnum getur dottið í hug…
@Jón H: http://www.apple.is/vorur/bordtolvur/
Ohh, nú er iMacinn minn ekki lengur “top of the line” :/
Mér finnst svo leiðinlegt að Apple sé alltaf að uppfæra hlutina sína, þannig að manni finnist maður vera kominn með gamla tölvu
Hérna maður getur fengið sér 2.8 ghz og síðan fengið 8800gs kortið í hana allvegba samkvæmt apple.com ætti maður að geta það ?
einnig getur maður sleept að taka minni og mús og lyklaborð þarna í imc til að fá þetta ódýrara ?
Enda er sagt að tölvuárið séu þrír mánuðir!
Árni: jámm, það er hægt