Adobe inná sjónvarpsmarkaðinn

amp.jpg

Adobe-fyrirtækið er hvað þekktast fyrir myndvinnsluforrit sín en allir þeir sem einhverntímann hafa vafrað á netinu hafa líklega notað eina afurð fyrirtækisins: flash-spilarann, sem kom fyrst á markað undir lok síðustu aldar og hefur verið órjúfanlegur hluti af vefveröld okkar síðan.
Flash-tæknin hefur síðan orðið undirstaða margra vefrisa, má þar fyrst nefna YouTube en einnig er tæknin sá grunnur sem leikja- og samskiptasíður fyrir börn byggja á og halar inn gríðarlegu fjármagni ár hvert.
Það er því ekkert undrunarefni að Adobe hafi sett á markað nýtt forrit sem byggir á flash-tækninni og gerir almenningi nú kleift að skoða sjónvarpsþætti, fyrirlestra og annað myndefni af netinu, allt á einum stað og jafnvel niðurhala efninu líka. Forritið kallast Adobe Media Player eða AMP og byggir á hinni nýju AIR-tækni Adobe, þá skiptir ekki máli hvort stýrikerfið sé Linux, Apple eða Windows, tæknin gerir mögulegt að keyra sama forrit á öllum stýrikerfum.
Viðmót AMP er haganlega sett upp, við notandanum blasa efnisflokkar og því auðvelt að rata að því sem maður leitar að. Einnig er hægt að bókamerkja áhugavert efni sem maður vill skoða nánar síðar meir og raðast það þá sérstaklega upp í sér dálki í viðmótinu.

Eðalefni og háskerpa
Það sem gerir AMP sérstaklega áhugavert er að nú er hægt að hlaða niður myndefni af vefnum og geyma á tölvunni en það hefur reynst venjulegum notanda óþægur ljár í þúfu hingað til með flash-myndefni. Reyndar styður forritið höfundarréttarvarið efni (DRM) þannig að það er undir útgefanda efnisins komið hvort hægt sé að hlaða því niður eða horfa eingöngu á það í forritinu. Samkvæmt upplýsingum frá Adobe getur forritið keyrt efni í upplausn frá 480i upp að 1080p þannig að þeir sem vilja bara sjá efni í háskerpu ættu að gleðjast.
Adobe hefur þegar gert samninga við nokkrar sjónvarpsstöðvar vestanhafs um efni fyrir AMP, meðal annarra CBS-stöðina sem býður okkur uppá CSI þættina og eldra efni úr safni sínu, PBS og MTV með The Hills þættina. Adobe hefur þegar gefið það upp að efni frá Comedy Central, Spike og öðrum stöðvum sé væntanlegt á næstunni fyrir AMP.
En ekkert er frítt í henni veröld og Adobe vinnur nú ötulum höndum með útgefendum myndefnis að auglýsingaherferðum tengdum AMP. Forritið sjálft mælir áhorf á einstaka þætti, heldur vel utan um höfundaréttarvarið efni og ekki er hægt að „blokkera” auglýsingar af hálfu notandans frá því efni sem sýnt er.

0 svör við “Adobe inná sjónvarpsmarkaðinn”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!