OpenMac er tölva sem fyrirtæki að nafni Psystar hefur lofað á næstunni. Það sem gerir þessa vöru merkilega er ekki bara nafnið heldur að hún virkar með Leopard. Fyrir aðeins $399 færðu fyrrnefndu tölvu með:
When comparing base configurations, the Mac Mini costs 150% of the price of the OpenMac while offering poorer performance, smaller storage space, and RAM. Not only that but the Mac Mini doesn’t have the option for an nVidia GeForce 8600 video card like the OpenMac does so playing games on it is a lost cause.
Segir fyrirtækið.
Eitt sem greinilega gleymist er að enginn hugbúnaður fylgir, þannig að aukakostnaður er að sjálfsögðu stýrikerfið og iLife fyrir þá sem þurfa.
Segjast verður að Psystar eru að fara á ansi hálan ís þar sem notkun á Mac OS X á öðrum vélbúnaði en frá Apple er stranglega bannað. Hins vegar gæti reynst erfitt að kæra Psystar ef þeir ákveða að fjarlægja valmöguleikann að kaupa Leopard innsett með vélinni (kostar $155).
Persónulega vona ég að Apple sjái ljósið og fari að gefa út lítinn turn sem hefur uppfærslumöguleika og á góðu verði.
Hvað finnst ykkur um þetta?




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Mér finnst þetta frábært…áfram Psystar!!
Gott mál, löngu kominn tími til að þeir sem hafa ekki mikið á milli handanna geti notið þess að eiga vél með Mac OSX.
A. Single Use. This License allows you to install, use and run one (1) copy of the Apple Software on a single Apple-labeled computer at a time. You agree not to install, use
or run the Apple Software on any non-Apple-labeled computer, or to enable others to do so. This License does not allow the Apple Software to exist on computer at a time, and you may not make the Apple Software available over a network where it could be used by multiple computers at the same time.
Ég get þá bara rifið innvolsið úr gamla G4 turninum mínum, keypt OEM hluti, og notað Leopard leyfið mitt á þessa apple labeled tölvu. Græði allt, smekklegur kassi og frábært stýrikerfi í tölvu sem kostar miklu mun minna, mér sýnist að maður gæti græjað vél hér heima vel undir 50kallinum.
Góð hugmynd, en mér finnst frekar að apple ætti að koma með hana:P Kannski er ég bara sérvitur en mér finnst makkinn sjálfur alveg jafn mikilvægur og hugbúnaðurinn…
“notkun á Mac OS X á öðrum vélbúnaði en frá Apple er stranglega bannað.”
Þetta er auðvitað bara asnalegt að apple myndi kæra annað fyrirtæki fyrir að skapa þeim tekjur og nýja viðskiptavini. Tími kominn að Apple vakni til lífsins og leyfi öðrum að selja OS X.
Um leið og Apple leyfir öðrum að framleiða vélbúnað sem keyrir Mac Os X þá hafa þeir ekki lengur þessa gæðastjórnun sem þeir hafa. Mac Os X er bara keyrt á ákveðnum vélbúnaði og því er það stöðugra kerfi en t.d. Windows sem keyrir á allskonar vélbúnaði frá þúsundum framleiðenda.
Mér finnst þetta svosem allt í lagi en ég er líka sammála Spjelgus og mér finnst að Apple ættu sjálfir að bjóða uppá svipað, það yrði samt seint raunin held ég
Ups, tetta stod ekki lengi. Teir virdast vera horfnir.
http://www.news.com/8301-13579_3-9918069-37.html
Það er samt möguleiki að þetta muni ekki ganga — http://www.engadget.com/2008/04/14/psystar-site-goes-down-under-load-apple-lawyers-seen-shopping-f/
Þetta gengur aldrei upp í USA, myndi ganga hér heima þar sem EULA hafa ekki lagalegt gildi hér á Íslandi.
Síðan er komin aftur upp…. sýnst þeir vera farnir að selja hana…
ágætis hugmynd á ferð en eitt. mikið andskoti kaupir maður nú frekar Apple vél og það líka útaf útlitinu. er svo sáttur þegar maður þarf ekki að horfa uppá ljóta turnkassa (f.utan MacPro) á heimilum. ætti að banna þetta vegna sjónmengunar