Airport Express nú með 802.11n

dfk2389.jpg

Í dag kynnti Apple smávægilega uppfærslu á tækinu Airport Express, en það er lítill þráðlaus sendir með USB-tengi fyrir prentara og hljóðútgang fyrir græjur.

802.11n er kannski eitthvað sem margir hafa heyrt, en það er staðall fyrir þráðlausa tækni og skýrir hraðagetu. Fyrir stuttu var 802.11g staðallinn sá hraðasti en hann nær mest 54mbps í hraða. N-staðallinn er sagður vera um 5-falt hraðvirkari en sá fyrrnefndi og drægni þess tvöföld meiri.

Verðið helst óbreytt á tækinu, eða um $99 í BNA, og má búast við því hérlendis innan við þriggja vikna.

Lesið meira um tækið hér

4 svör við “Airport Express nú með 802.11n”


  1. Gravatar Icon 1 Snorrib Mánudagur 17. mars 2008 kl. 20:05

    Næs, en var að pæla, ef ég er uppi í stofu og ætla að renta út úr prentara sem er í öðru herbergi, er þetta þá tækið til þess að leysa snúruvandann þar?

    -Snorrib

  2. Gravatar Icon 2 Kristófer Mánudagur 17. mars 2008 kl. 20:06

    jebsí pepsí

  3. Gravatar Icon 3 Helgi Mánudagur 17. mars 2008 kl. 23:19

    Hvenar kemur þessi dúddi í Eplabúðina?

  4. Gravatar Icon 4 Bjöggi Þriðjudagur 18. mars 2008 kl. 08:18

    Helgi: lastu fréttina??

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!