Maclantic bjórkvöld á föstudaginn

beer.jpgSæl öllsömul!

Mig langaði til að nefna við lesendur og aðra áhugasama að Maclantic samfélagið mun hittast föstudaginn 14. mars á „The English Pub“ niður í miðbæ Reykjavíkur.

Þar sem lítið varð um tveggja ára afmælishald félagsins þá hvet ég ykkur öll eindregið til að mæta og spjalla við ykkar uppáhalds Maclantic-notendur og „fíendur“ – já og mig að sjálfsögðu! ;-)

Þið sem ekki drekkið bjór – skiptir ekki máli. Ég skal sannfæra ykkur um að bjór sé hollur og góður!

Semsagt:
- English Pub -
- föstudaginn 14. mars, k. 21:00 -

Sjáumst þá!

Kveðja,
Bjöggi

12 svör við “Maclantic bjórkvöld á föstudaginn”


  1. Gravatar Icon 1 Jóhannes Gunnar Miðvikudagur 12. mars 2008 kl. 23:35

    verður eitthvað um drykkju hér á Akureyri?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Miðvikudagur 12. mars 2008 kl. 23:37

    Akureyringar drífa sig suður! ;)

  3. Gravatar Icon 3 Böddi Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 09:24

    Er bara ekki að setja upp fjarfundar búnað, fyrir okkur landsbyggðar makkana.

  4. Gravatar Icon 4 Þórgnýr Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 11:15

    Það þætti mér fyndið að sjá. Og, hmm, kannski maður kíki.

  5. Gravatar Icon 5 Krunka Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 11:19

    sko þið þarna fyrir norðan, hvernig væri að þið bara hittust, það er alveg nóg af ykkur þarna ;)
    Ég get líka alveg slæst í hópinn hef þið hittist um páskana ;D

  6. Gravatar Icon 6 Kiddi Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 12:44

    ég er að spila í einhverri veislu um þetta leiti en tjekka á ykkur að því loknu.. þið endist vonandi eitthvað þarna…

  7. Gravatar Icon 7 Apple stelpurnar Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 16:32

    Jeij… afmælið mitt á english ;)

  8. Gravatar Icon 8 Davíð Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 17:13

    Verður þetta ekki þá bara Ye Irish Pub ?

  9. Gravatar Icon 9 Apple stelpurnar Fimmtudagur 13. mars 2008 kl. 17:30

    We’ll show them english how the irish drink !;)

  10. Gravatar Icon 10 Gústi Sunnudagur 16. mars 2008 kl. 19:26

    Þetta hefur greinilega verið all svakalegt skrall…..engar fréttir í “marga daga” á eftir ;o)

    Vona að þið hafið skemmt ykkur vel…

  11. Gravatar Icon 11 svampur Sunnudagur 16. mars 2008 kl. 20:56

    já hvar eru fréttirnar

  12. Gravatar Icon 12 Kristófer Mánudagur 17. mars 2008 kl. 00:10

    @Svampur, oft ekki mikið fréttnæmt um helgar. Æli Apple-menn séu ekki bara í þynnkunni líka ;)

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!