
Apple kynnti í dag glænýjan möguleika í iTunes Store, að geta leigt kvikmyndir frá öllum stærstu útgáfufyrirtækjum kvikmyndamarkaðsins.
Áður en lengra er haldið vil ég taka fram að iTunes Store virkar ekki hérlendis og er einungis ein leið til þess að nota hana á Íslandi; með því að kaupa iTunes-inneignarkort í Bandaríkjunum.
Úrvalið er eitt það stærsta sem þekkist á hinum stafræna kvikmyndamarkaði netsins en um 1000 myndir eru nú fáanlegar, bæði nýjar og gamlar. Leiguverðið er enn betra: $2.99 og $3.99 (HD) fyrir eldri myndir, $3.99 og $4.99 (HD-gæði) fyrir nýjar.
Takmarkanir sem fylgja leiguverðinu er að hægt er að halda efninu í 30 daga áður en það eyðist, en eftir fyrstu afspilun rennur myndskeiðið út innan sólarhrings.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita hvernig skal nota iTunes-inneignarkort hérlendis, skiljið eftir athugasemdir og ég kannski hendi inn leiðbeiningum á næstunni.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Ég væri mjög til í að vita hvernig hægt sé að nota/nálgast svona kort. Væri frábært ef þú gætir hent inn leiðbeiningum eða einhver bent mér á þær!
Get ég fengið einhvern sem ég þekki í US til að kaupa þessi inneignarkort og notað þau svo héðan?
Væri ekki bara snidugt ad Apple IMC færi ad selja iTunes gjafakort? Eda einhverjir adrir adilar? Ekki alveg eins thæginlegt og ad vera med account en thó betra en ekkert
Bjarki Thor:
það væri óskandi ef það væri svo létt…
Það er einfaldlega ólöglegt
Er rental takkinn komin inn í itms hjá ykkur?
Er spenntur að prufa þetta og sjá hvað HD myndirnar eru þungar.
Það væri snilld að fá uppl um hvernig hægt er að nota iTunes-inneignarkort.
Skv. upplýsingum eru HD myndirnar aðeins fánlegar gegum Apple TV.
Nokkuð svekkjandi.