
Er Steve Jobs steig á sviðið í dag á Macworld í San Francisco kynnti hann ýmislegt áhugavert en Apple TV var þar á meðal uppfært til muna.
Uppfærslan felst í stýrikerfi græjunnar, en notandaviðmótið hefur verið bætt til muna og gert mun þægilegar í notkun hvað varðar stjórnun með Apple Remote. Hægt verður að uppfæra núverandi Apple TV í gegnum Software Update tækisins á næstu vikum til að fá fyrrnefndu eiginleika.
Apple TV er nú sjálfstæðari græja sem hægt er að nota til að leigja myndir í gegnum iTunes (einungis USA eins og stendur) í HD-gæðum, horfa og hlusta á Podcast, kaupa tónlist, skoða myndir á Flickr og .Mac Web Gallery ásamt því að horfa á YouTube.
Þar að auki var Apple TV lækkað niður í $229 (áður $299) fyrir 40GB útgáfuna og í $329 (áður $399) fyrir 160GB útgáfuna.
Skoðið myndband til að sjá Apple TV í notkun.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
0 svör við “Apple TV uppfært og lækkað í verði”