Intel kynnir heimsins minnstu gagnageymslu

intelz-p140-lg.jpg

Seint í gær kynnti Intel nýja gagnageymsluflögu sem er sú minnsta sem fyrirfinnst á markaðinum í dag.

Um er að ræða 566 mg (0,6 g) þunga flögu sem er minni en íslensk króna að stærð og mun hraðvirkari en núverandi NAND-flash kort. Leshraði er í kringum 40MB á sekúndu og skrifhraði 30MB/sek.

Hið fyrrnefnda kort, sem ber heitið Z-P140 (hvað er annars málið með þessar nafnagiftir?), hefur að geyma 2GB pláss en mun ná 4GB um mitt árið 2008 og 16GB í framtíðinni.

Aðalkostur þessarar flögu er að hún hentar mjög vel í ferðatæki á borð við fartölvur þar sem nánast hvaða stýrikerfi sem er keyrir á henni án þess að þurfa harðdiskstýringu eins og er í tölvum í dag. Eini ókostur hennar, að mínu mati, er að hún er P-ATA stýrð.

Áætlað er að Z-P140 verði markaðssett á sama tíma og Menlow, sem er næsta kynslóð ferðaörgjörva, þ.e. á næsta ári.

Hvort þessi flaga hefur góðan möguleika á markaðinum er erfitt að segja, en augljóst er að geymslupláss Z-P140 verður að stækka til muna til að ná árangri.

www.intel.com

0 svör við “Intel kynnir heimsins minnstu gagnageymslu”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!