Í stuttu máli: Macworld, Penryn og OS X

ZZ0B5574BB.jpg

Samkvæmt nýjustu fregnum mun Steve Jobs, forstjóri Apple, halda hið fræga „Keynote“ á Macworld-ráðstefnunni í San Francisco í byrjun janúar. Oft á tíðum eru nýjar og byltingarkenndar vörur kynntar þar og má þá búast við nýrri fartölvulínu ef orðrómurinn reynist vera réttur.

Markaðshlutdeild Makkans fer stækkandi með tímanum og samkvæmt nýjustu tölum hefur Windows-notendum fækkað um 1,74% á meðan Mac-notendur hafa aukist um 1,41% ef miðað er við nóvember 2006 og 2007.

Það fer að styttast í Penryn-örgjörvann frá Intel, en hann er uppfærsla af núverandi örgjörvum sem hafa verið notaðir í MacBook og MacBook Pro. Um er að ræða klukkutíðni frá 2,1GHz uppí 2,8GHz með allt að 6MB skyndiminni. Búast má við þeim í janúar og því nokkuð hentugt fyrir Apple að kynna eitthvað nýtt og spennandi í þeim mánuði (Macworld, einhver?).

Björt framtíð hjá Apple, ekki annað hægt að segja!

7 svör við “Í stuttu máli: Macworld, Penryn og OS X”


  1. Gravatar Icon 1 g4dd1 Mánudagur 3. desember 2007 kl. 23:48

    hólí mólí

  2. Gravatar Icon 2 Gret Mánudagur 3. desember 2007 kl. 23:51

    Gvakamólí

  3. Gravatar Icon 3 pentagon Þriðjudagur 4. desember 2007 kl. 12:59

    Mun þetta auka rafhlöðu endingu eða hvað?

  4. Gravatar Icon 4 jónbragi Þriðjudagur 4. desember 2007 kl. 16:52

    hvenær mun sá dagur koma, þegar við þurfum ekki lengur að hugsa um rafhlöður?!

  5. Gravatar Icon 5 Murdoch Þriðjudagur 4. desember 2007 kl. 23:49

    Er eitthvað búist við uppfærslu á iMac. Er séns að þær lækki eitthvað í verði eftir þetta?

  6. Gravatar Icon 6 patrik Miðvikudagur 5. desember 2007 kl. 05:31

    Spennandi fréttir.

    Á myndinni að ofan finnst mér eins of Apple sé Pacman að fara að bíta í Intel.

  7. Gravatar Icon 7 Bjöggi Miðvikudagur 5. desember 2007 kl. 09:14

    @Murdoch:
    Nei, það eru mjög litlar líkur á því

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!