
Gmail er sennilega ein besta veflæga póstlausnin sem fáanleg er. Þegar þessi orð eru skrifuð fær hver notandi nálægt þremur gígabætum úthlutað – frítt! Sjálfur hef ég eingöngu notað gmail síðustu tvö árin og er ekkert að fara að skipta yfir í aðra þjónustu. Hversvegna?
Í fyrsta lagi þykir mér þægilegt að hafa sama viðmót, tungumál og forrit, hvort sem ég er heima, í vinnu eða á ferðalagi. Þá skiptir vafrinn eða stýrikerfið ekki máli því viðmótið er veflægt.
Í öðru lagi er Gmail á íslensku. Það þykir mér kostur, ekki síst fyrir þá sem vilja stafsetningaryfirlestur áður en þeir senda frá sér póstinn sinn. (Yfirlestur fyrir íslensku er nú innbyggður í Gmail)
Í þriðja lagi er leit innan pósthólfs ákaflega auðveld í Gmail. Ég var með Gmail tengt við Mail.app en alltaf þegar ég þurfti að leita að einhverju mikilvægu endaði ég hreinlega á að fara inná Gmail í vafranum mínum og framkvæma leitina þar með niðurstöðu nokkrum sekúndum síðar.
Í fjórða lagi: Samtöl. Gmail hefur einstaklega lógíska leið til að raða saman samtölum, þ.e.a.s þegar menn svara sama pósti fram og til baka yfir lengra tímabil.
Í fimmta lagi er ruslpóstvörn Gmail að mínu mati ein sú besta sem völ er á – frítt!
Það var því með ákaflega jákvæðu viðhorfi sem ég prófaði Mailplane, forrit sem er byggt utan um veflægan grunn Gmail en hefur auk þess virkni góðs makkaforrits, samhæfingu við Address Book og iLife forritin, Growl tilkynningar, innsetningu textabúta, tekur fyrir þig skjáskot eða sendir fyrir þig nýjustu myndirnar úr iPhoto og minnkar þær eftir þinni fyrirfram ákveðnu forskrift. Og ekki sakar að forritið kemur einnig með íslenskri þýðingu.
En snúum okkur að praktískum atriðum. Ef menn vilja hafa íslenskt viðmót er einfaldlega hægrismellt í táknmynd forritsins og valið Info. Síðan eru önnur tungumál en íslenska afhökuð og forritið ræst.
Þegar forritið er ræst í fyrsta skipti er viðkomandi beðinn um að skrá inn notandanafn og lykilorð.

Þá birtist kunnuglegt viðmót Gmail á skjánum, en með nokkrum mikilvægum viðbótum. Efst er komin verkfærastika og fyrir þá sem nota meira en einn Gmail aðgang er hægt að opna hliðarskúffu og skipta milli aðganga á fljótlegan máta.
Það væri of langt mál að telja upp alla þá eiginleika sem forritið er búið – semja, lesa, eyða, stjörnumerkja eða þjappa kæmi fáum á óvart. En ég ætla að nefna nokkur atriði sem standa uppúr.
Hingað til hefur samhæfing iLife forritanna við Gmail ekki verið nein. Ferillinn við að senda mynd úr iPhoto hefur einhvernveginn verið á þessa leið hjá mér: Draga mynd út úr iPhoto, opna Photoshop og minnka hana í viðeigandi stærð, innskrá sig inní Gmail og hlaða upp myndinni sem viðhengi eftir að vera búinn að finna hana á skjáborði eða annars staðar.
Með Mailplane er ferillinn öðruvísi. Opna iPhoto, velja myndina (eða myndirnar) og smella á einn hnapp. Myndin eða myndirnar eru sjálfkrafa settar í rétta stærð, vistaðar og settar sem viðhengi í nýjan póst. Hægt er að velja fyrirfram ákveðnar myndastærðir í stillingum Mailplane og gera þannig langdreginn feril að fljótlegri og skemmtilegri lausn. Mailplane „optimizar” einnig myndirnar, þ.e. fær út bestu mögulegu útkomu varðandi stærð í bætum miðað við gæði.

Að auki er í verkfærastiku Mailplane að finna hnapp sem ber nafnið iMedia sem einsog nafnið bendir til tengist iLife forritunum frá Apple. Ef smellt er á hnappinn opnast gluggi þar sem hægt er að velja á milli hljóðs, ljósmynda eða hreyfimynda. Síðan má einfaldlaga draga og sleppa þeirri skrá sem valin er, hvort sem það er hljóðskrá, myndskrá eða kvikmyndaskrá.
Ef þú vilt hinsvegar senda mynd í fullri upplausn má halda niðri command eða slaufu hnappinum meðan dregið er og sleppt og fara þannig framhjá þeim stillingum sem settar hafa verið.
Með Mailplane má einnig taka skjáskot sem vistast sjálfkrafa sem viðhengi við skilaboð. Allt með því að smella á einn hnapp og ákvarða síðan hvaða hluta skjásins á að mynda, hvaða forriti eða hvort um venjulega skjáborðsmynd er að ræða.
Mailplane er þessa dagana í betaútgáfu og ekki hefur verið hægt að fá að prófa forritið nema gegnum „invitation”.
Ég hafði samband við Ruben Bakker, höfund Mailplane, sem góðfúslega úthlutaði Maclantic lesendum þrjátíu „boðsmiða” fyrir forritið og er einfaldlega hægt að setja nafn og netfang hér að neðan í athugasemdakerfið eða senda beint á mig á netfangið pallisvans (hjá) gmail punktur com og verður þá póstur sendur á viðkomandi með tilheyrandi upplýsingum – fyrstir koma, fyrstir fá.
Uppfært: Allir boðsmiðar kláraðir en hægt er að skrá sig hér og sjá hvort að boðsmiði komi ekki fljótlega í póstinum.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Pant pant pant
Pant pant pant er þá væntanlega netfangið þitt?
pant? steingerdurs@gmail.com
takk
heidurbj@gmail.com ef þú vildir vera svo góður
Pant, vertu svo góður. bjarkijunior@gmail.com
Pant, vertu svo góður. bjarkijunior@gmail.com
Væri til í að prufa þetta.
hjaltij@gmail.com
Takk.
Takk fyrir…
kadonkidong@gmail.com
armann205@gmail.com
Takk fyrir.
einsi@hive.is
takk fyrir
sverrir@dino.is
Takk kærlega
spretturinn@gmail.com
það væri snilld að prófa þeta
kveðja bjössi
Ef þér vilduð vera svo vænn
bogireynisson@gmail.com
Þetta lítur sérdeilis vel út
hvurslags@gmail.com
Kristófer Kristófersson
krissik@gmail.com
biggibraga@gmail.com
Já, takk..
einargi@gmail.com
Vá margir búnir að skrá sig: arnorv hjá gmail punktur com (þó það sé góð sía þá lætur maður samt ekki netföngin heil á síður
)
krihel@gmail.com
Lítur vel út. Takk.
Pant
Hildur Maral Haíðsdóttir
hildur.maral hjá gmail.com
Pant líka.
HaMíðsdóttir
haraldurinn@gmail.com
pannt
minn líka
runar.sigurdur@gmail.com
veiii
Doh! Jón Kári og Svavar fá þrjú refsistig og verða að bíða eina umferð fyrir að gefa upp netfangið pant og pant líka!
ég vil líka
rurkbjo hjá gmail.com
mig líka..
gudvardur hjá gmail.com
gaman að prófa þetta
Allir boðsmiðar búnir en hægt er að skrá hér: http://mailplaneapp.com/beta/index.htmlog sjá hvort að boðsmiði komi ekki fljótlega í póstinum.
Átti að vera http://mailplaneapp.com/beta/index.html
Hef verið Beta tester frá byrjun og Mailplane er alveg frábært forrit. Nota bæði ensku og íslensku útgáfuna.
Amm, get ekki án þess verið núna!
Úh, tasty! Ég er hægt og rólega að skipta algerlega yfir í Gmail úr spaghettísúpu af e-mailum. Langar að prófa þetta og ditcha Mail.app (og gera SpamSieve fjárfestinguna mína að engu :’( :p ) en er þá best að setja bara reglur á önnur e-mail box um að áframsenda á gmailið manns?
Kalli, ég læt skólapóstinn minn og önnur e-mail áframsenda allann póst á g-mailinn og síðan er ég með þau e-mail einnig uppsett í gmail þannig að ég get reply’að með þeim í gegnum gmail.
PS: er einhver hér sem veit um OSX lúkkandi style sheet fyrir gmail. það væri geðveikt að fá 100% OSX viðmót á mailplane. langar alveg virkilega að losna við þetta venjulega gmail viðmót.
Takk, Jóhannes!
Það er ein spurning varðandi það sem ég hef: síar Gmail ruslpóstinn frá áframsenda póstinum?
Ein spurning, getur maður sett inn önnur emailföng í þetta en gmail?
Það eru leiðbeiningar á Gmail síðunni um hvernig þú getur látið Gmail sækja póst frá POP póstþjónum og hvernig þú getur sent póst í gegnum Gmail en með öðru póstfangi.
Geðveikt! Good-bye o’Mail.app!
Getur einhver skelt invite á mig?
vignirm@gmail.com
Má ég líka fá…
vignir@xy.is
Veit einhver hvað forritið mun síðan kosta?
Þetta væri mjög fínt forrit ef þetta myndi nú styðja simnet accountinn minn
Þar sem ég missti af tækifærinu hér til þess að fá aðgang, sendi ég beiðni um að komast í betuna af http://mailplaneapp.com/beta/index.htmlog fékk eintak af forritinu daginn eftir. Ég mæli eindregið með að fólk geri slíkt hið sama ef það hefur ekki enn fengið eintak, þar sem að forritið gerir gagn sitt vel. Einn kostur við þetta forrit: Ég hef fengið það til að tengjast gmail í skólanum, en mail.app hefur ekki getað það enn.
Indælt, allt saman.
Hm, hef víst gleymt að setja bil milli tengilsins og orðinu “og”.
Skrambinn.
Sorry Palli, var ekki búinn að lesa kommentin hér þegar ég sendi þér mail. Ég tékka á þessarri síðu og athuga hvort ég fái ekki eintak.
Vignir: þetta getur náð í simnet póstinn þinn.
settings -> account -> Get mail from other accounts:
Ég sé þessa stillingu hvergi jósi
Humm skrýtið.
Kíktu á þetta og sjáðu hvort það hjálpi eitthvað:
http://mail.google.com/support/bin/answer.py?ctx=%67mail&hl=en&answer=21288
Shit hvað þetta forrit er sweet
Ef einhverjum vantar eintak af þessu forriti, hef ég fjóra boðsmiða til að niðurhala því.
Póstfang mitt er neptunus [punktur] e [hjá] gmail [punktur] com , sendið póst þangað ef þið hafið áhuga.
Ég er með 5 boðsmiða fyrir þetta massaforrit. Látið mig vita á bjarki@þiðvitið.com ef þið hafið áhuga.