Apple að undirbúa nýja fartölvu?

u-port_mac.jpg

Vísbendingar um að Apple sé að hanna nýja fartölvu, eða ofurlétta og smáa fartölvu, hafa birst á heimasíðu einkaleyfastofu BNA.

Þar er gefið fram tækni sem gerir Apple kleift að „minnka“ núverandi tengi á fartölvum, á borð við ethernet FW og USB, til að takmarka ekki þykkt tölvunnar.

Sjálf tengin eru ekki minnkuð heldur smellt út úr tölvunni eins og myndin hér að ofan gefur til kynna.

Við verðum að vona það besta að Apple sé í raun og veru að þróa „ultra-portable“ tölvu, því eitt stykki svoleiðis væri mjög líklega velkomið á mörgum heimilum.

Einhver sagði „iMac + Ultra Portable Mac = Perfect Combo“. Get ekki verið meira sammála..

Heimild: Macrumors

11 svör við “Apple að undirbúa nýja fartölvu?”


  1. Gravatar Icon 1 Kristófer Fimmtudagur 16. ágúst 2007 kl. 22:39

    Sounds good!

  2. Gravatar Icon 2 Belgurinn Föstudagur 17. ágúst 2007 kl. 10:46

    Það væri ekkert nema ljúft… saknaði 12″ PowerBook og keypti mér svoleiðis. Mundi samt vilja fá alvöru græju með Intel, en vill ekki sjá MacBook. Vona bara að hún verði ekki með glossy skjá :(

  3. Gravatar Icon 3 Haraldur Föstudagur 17. ágúst 2007 kl. 16:33

    apple hafa announceað að allar nýjar vörur sem að koma frá þeim verði með glossy skjá :)

  4. Gravatar Icon 4 hemmi Föstudagur 17. ágúst 2007 kl. 17:38

    ansk$%& glossy skjár er ekki flott, sé ekkert cool við það að sjá glugga og ljós speglast í skjánum >:(

  5. Gravatar Icon 5 Bjöggi Föstudagur 17. ágúst 2007 kl. 20:25

    Haraldur: hvaðan heyrðirðu það?

    Apple hefur hvergi komið því á framfæri.

  6. Gravatar Icon 6 Þórgnýr Thoroddsen Laugardagur 18. ágúst 2007 kl. 01:02

    Myndu þessi tengi ekki bara brotna???? Hljómar mjöööööööööög viðkvæmt.

  7. Gravatar Icon 7 Haraldur Laugardagur 18. ágúst 2007 kl. 19:13
  8. Gravatar Icon 8 robs Laugardagur 18. ágúst 2007 kl. 21:32

    Ég hef reyndar aldrei fundið fyrir óþægindum með glossy skjáinn, hvorki úti né inni. Mér finnst matte hinsvegar alveg hrikalegt úti hann lýsist svo upp að maður sér ekkert.

  9. Gravatar Icon 9 haraldur Sunnudagur 19. ágúst 2007 kl. 12:56

    já ég fýla glossy meira

  10. Gravatar Icon 10 andri Sunnudagur 19. ágúst 2007 kl. 17:10

    stórt luuuv á glossý

  11. Gravatar Icon 11 osk Sunnudagur 19. ágúst 2007 kl. 22:01

    Sit hliðina á macbook með glossý skjá og sé ekki að það séu nein vandræði með speglun og annað. Svo er einhvernveginn allt fallegra á glossý skjánum…

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!