Eins og svo margir tóku eftir var iMac uppfærður í dag í algjörlega nýrri skel og að sjálfsögðu með nýtt innihald sem verður að teljast nokkuð freistandi.
Það sem er mest áberandi er að tölvan er nú algjörlega úr áli og svartleit að aftan. Skjárinn er „glossy“, eða glansskjár, og svartur rammi þar að auki í kring eins og sjá má hér á myndinni til vinstri.
Algjörlega endurhannað lyklaborð var einnig kynnt; bæði vírað og þráðlaust en þau eru mjög ólík í útliti og stærð eins og sjá má hér fyrir neðan.
Víraða lyklaborðið mun fylgja með öllum iMac-tölvum og hægt að velja um þráðlaust sett fyrir auka $79.
Bluetooth lyklaborðið er á stærð við venjulegt fartölvulyklaborð og hefur að geyma ræsitakkann á hægri hlið og lok fyrir rafhlöður vinstra megin:

Tengimöguleikar á iMac hefur breyst að því leyti að FireWire 800 er á öllum tölvum og að víraða lyklaborðið hefur að geyma tvö USB 2.0 tengi (áður 1.1). Airport Extreme 802.11n kort fylgir og að sjálfsögðu Bluetooth 2.0.
Einfalt er að skipta um vinnsluminni í tölvunni og til sönnunar um einfaldleikann þarf einungis eina skrúfu til þess, en staðsetningu þess er undir tölvunni.

Merkilegast verður þó að teljast að nú er dýrari gerðin af 24″ iMakkanum til staðar sem býður upp á mun öflugri örgjörva af gerðinni Core 2 Extreme, sem er í 2,8GHz.
Þar að auki er brautarhraði tölvunnar aukinn og kominn í 800MHz (áður 667MHz).

Fjórar gerðir eru nú til af iMac:
20″ iMac ($1199) með:
20″ iMac ($1499) með:
24″ iMac ($1799) með:
24″ iMac ($2299) með:




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Hlakka til að kaupa þessa vél þegar ég kem til DK aftur, vona bara að biðtími verði stuttur.
Og eitt einn, 24″ vélarnar eru með ATI Radeon HD 2600 PRO með 256MB skjáminni en ekki ATi Radeon HD 2400 XT með 128MB skjáminni
Fallegt þetta. En nú verður samt ekki hægt að segja “apple z”.
24″ iMac ($2299) á ég efftir að kaupa stax og leopard kemur út