Santa Rosa mætt á svæðið

inasd091.jpgIntel hefur loks gefið út uppfærslu (2. kynslóð) af Core 2 Duo örgjörvum sínum ætlaðir fartölvum. Um er að ræða nafnið „Santa Rosa“ á nýju fartölvulínunni s.k., en örgjörvarnir þar eru ekki einungis hraðari heldur bjóða upp á mun hraðvirkari brautarhraða (800MHz á móti 667MHz).

Örgjörvarnir eru til í eftirfarandi útgáfum:

  • T7700 – 2,40GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7500 – 2,20GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7300 – 2,00GHz, 4MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • T7100 – 1,80GHz, 2MB L2 skyndiminni, 800MHz FSB
  • Það sem gerir örgjörvana merkilegri er að þeir nota minni orku (þ.a.l. kaldari) og gefa því lengri rafhlöðuendingu en fyrri kynslóð af Core 2 Duo. Þar að auki eru þeir ódýrari en eldri útgáfa af Core 2 Duo eins og hægt er að sjá á töflunni hér að neðan (nýju gerðirnar eru efst):

    santarosa.gif
    Smellið til að stækka

    Búast má við að MacBook Pro verði fyrsta línan hjá Apple til að fá þessa nýju örgjörva og jafnvel LED-baklýsingu á LCD skjái sína á næstunni. Erfitt er að segja nákvæmlega hvenær tölvurnar verða uppfærðar en telja má að það verði í júní.

    www.appleinsider.com

    3 svör við “Santa Rosa mætt á svæðið”


    1. Gravatar Icon 1 Hansi Fimmtudagur 10. maí 2007 kl. 19:13

      Er einhver sem vill kaupa 2.33GHz MacBook Pro?

    2. Gravatar Icon 2 Baldur Föstudagur 11. maí 2007 kl. 11:04

      Haha og ég sem ætlaði einmitt að fara að fá mér 2.33GHz MacBook Pro, held ég bíði aðeins..

    3. Gravatar Icon 3 Atli Viðar Föstudagur 11. maí 2007 kl. 13:49

      Santa Rosa! Los Sponsores Officiales DE SPRING BREAK! YAHOOOOO!

    Tjáðu þig!




    Auglýsingar

    Maclantic á Facebook

    Kommentið á Engadget:

    The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

    Joy of Tech

    Nýjasta Joy of Tech!