Næsta kynslóð örgjörva frá Intel í þróun

Intel_logo.jpgIntel hefur í dag gefið út ítarlegar upplýsingar um næstu kynslóð af 45nm örgjörvum á heimasíðu sinni en þar kemur fram hvað við megum búast við frá þeim á næstunni.

Örgjörvinn sem um er að ræða ber nafnið Penryn, en hann mun hafa eftirfarandi eiginleika:

  • Yfir 3GHz í hraða
  • Tveggja kjarna með 6MB L2 skyndiminni, 4x kjarna með 12MB L2
  • Hraðaaukningu hvað varðar Intel Virtualization Technology
  • „Enhanced Intel Dynamic Acceleration Technology“. Þetta þýðir einfaldlega að þegar annar kjarninn er óvirkur/sofandi þá mun annar fá aukna orku til að sinna forritum sem nota einn kjarna.
  • „Deep Power Down Technology“. Rafhlöðuending á fartölvum mun aukast þegar lítil sem engin vinnsla er í gangi.
  • Eins og staðan er í dag hefur Intel áætlað að hafa 15 gerðir af Penryn, en þeir munu þá flokkast undir „Core“ og „Xeon“ nöfnin eins og núverandi gerðir bera. Core hefur þá að geyma tveggja kjarna fartölvuörgjörva ásamt tveggja- og fjögurra kjarna borðtölvuörgjörva. Xeon mun þá hafa tveggja- og fjögurra kjarna gerðir fyrir þyngri vinnslu (Mac Pro er með Xeon örgjörva).

    Búast má við að þessar nýju gerðir af örgjörvum komi seinni part þessa árs.

    www.intel.com/pressroom

    3 svör við “Næsta kynslóð örgjörva frá Intel í þróun”


    1. Gravatar Icon 1 Orri Fimmtudagur 29. mars 2007 kl. 12:29

      þeir segja að hann fái:
      „Innovative new Intel® SSE4 and ATA instruction set architecture additions“

      Þýðir það að maður geti ekki keyrt öll forrit sem eru kompæluð fyrir hann á eldri örgjörvum?

    2. Gravatar Icon 2 bluntman Fimmtudagur 29. mars 2007 kl. 14:44

      “Additions” myndi ég nú bara túlka sem viðbót, þannig að þetta ætti að vera í lagi..

    3. Gravatar Icon 3 Orri Fimmtudagur 29. mars 2007 kl. 15:54

      Þeir hafa víst oft komið með einhverjar svona viðbætur…

    Tjáðu þig!




    Auglýsingar

    Maclantic á Facebook

    Kommentið á Engadget:

    The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

    Joy of Tech

    Nýjasta Joy of Tech!