Þráðlaust Apple

airportextreme.jpg
smellið á myndina til að stækka

Apple kynnti síðastliðinn mánuð nýja þráðlausa stöð sem styður 802.11n staðalinn. Þessi nýi staðall býður upp á mun meiri gagnagetu en áður hefur þekkst og gerir því mönnum kleift að streyma stærra efni á styttri tíma.

802.11n staðallinn býður upp á allt að 540mbps hraða, en það er 10 sinnum 80211n.jpghraðvirkara en sá sem notaður er mest í dag (802.11g).

Merkilegasta við þessa nýju stöð, fyrir utan hönnunina, er að hún hefur að geyma USB-tengi sem hægt er að nota til að tengja utanáliggjandi diska (flakkara) sem bjóða upp á USB2 tengi. Þetta þýðir einfaldlega að ekki þarf lengur að hafa flakkarana nálægt tölvunni heldur hægt að geyma þá á öðrum stað þar sem þeir trufla mann ekki.

Þó er mikilvægt að taka fram að einungis tölvur með Core 2 Duo örgjörva (ásamt Mac Pro) hafa möguleikann til að nýta sér 802.11n. Tölvurnar eru þó ekki tilbúnar í slaginn, eins og maður segir, en það þarf að virkja þennan staðal annað hvort með því að borga fyrir sérstaka uppfærslu eða kaupa sér fyrrnefndu þráðlausu stöð því henni fylgir uppfærslan.

Airport Extreme Base Station má búast við að sjá hér á landi í enda mánaðarins og má gera ráð fyrir að hún muni til með að kosta 19.900 krónur.

Meira um vöruna á Apple.com
Myndir af Airport Extreme stöðinni

3 svör við “Þráðlaust Apple”


  1. Gravatar Icon 1 Halcon Sunnudagur 4. febrúar 2007 kl. 15:05

    Er hægt að reikna með að þessi stöð eigi eftir að koma með Airtunes.. myndi panta um leið ef þetta styddi Airtunes, Prentar og flakkara.. :-S

  2. Gravatar Icon 2 orri Sunnudagur 4. febrúar 2007 kl. 17:00

    ég er að pæla er hægt að steama tónlist í gegnum þetta líka ?.. maður sér ekki tengimöguleikann á því á þessu

  3. Gravatar Icon 3 Bjöggi Sunnudagur 4. febrúar 2007 kl. 17:34

    Nei það er ekki hægt. Maður notar Airport Express fyrir það :)

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!