
Apple hefur í dag kynnt til sögunnar iPod shuffle í ýmsum litum. Um er að ræða bleika, græna, bláa og appelsínugula shuffle spilara.
Verðið helst óbreytt í USA, eða $79.

Apple hefur í dag kynnt til sögunnar iPod shuffle í ýmsum litum. Um er að ræða bleika, græna, bláa og appelsínugula shuffle spilara.
Verðið helst óbreytt í USA, eða $79.
Andskotans 802.11n enablerinn líka kominn inn á $1.99… verður bölvað vesen að þurfa að afgreiða það í búðinni…
Hvað er það?
Damn it
Bjöggi! Gastu ekki aulaði þessu út úr þér fyrir viku að þetta væri hugsanlega á leiðinni!!!!
Nú á ég bara gráan shuffle en vildi óska að ég ætti bleikan eða appelsínugulan ~skæl~
H
Notfærðu þér return policy
Er semsagt hægt að koma niðureftir núna með Core2Duo Hansi og virkja n gaurinn í tölvunni?
Apple er ekki búið að segja okkur hvernig þeir ætli að höndla þetta því miður en já það mun verða hægt.
Fyrir okkur svona bluecollar liðið, hvað er svona merkilegt við þetta n-dæmi?
Meiri hraði:
http://en.wikipedia.org/wiki/802.11n#802.11n
og er þetta eitthvað sem þið þurfið að gera, get ég ekki gert þetta, og skiptir þetta einhverju máli með venjulegum router?
Nei, þú getur gert þetta, þarft bara að setja Amríska addressu inn í Apple Store og nota svo kredit kortið þitt til að kaupa þetta. En þetta skiptir engu nema þú sért með 802.11n router.
er ég að misskilja eða þarf ég að kaupa aðgang að þessu til að gera þetta n virkt, eitthvað sem ég er búinn að kaupa þegar ég keypti vélina. ef svo er þá finnst mér þetta ótrúlega lélegt af apple.
Þú keyptir þetta ekki beint, kortið var auglýst sem b/g kort en er með stuðning við a/b/g/n en skv einhverjum skilmálum í bandaríkjunum meiga þeir ekki bjóða uppá þetta nema rukka fyrir.
Einnig má ekki bjóða uppá 802.11n í öllum löndum þannig að það gæti hafa verið undirliggjandi ástæða.
Verðum bara að bíða og sjá hvernig þetta verður hér heima.
Bókhaldararnir úti heimta að þeir rukki fyrir þetta. En ætti þetta þá ekki að vera ókeypis hérna? Eru einhverjar reglur hjá Apple IMC sem segja að ekki megi opna fyrir nýja virkni í vélbúnaði nema þiggja borgun fyrir? Það er í grunninn ástæðan að baki rukkuninni úti…
Eins og ég segi við eigum eftir að fá svör frá Apple INC um hvernig á að taka á þessu.
jej núna á ég appelsínugulan shuffle ;D