
Apple kynnti byltingarkennda vöru er Steve Jobs steig á svið á Macworld ráðstefnunni í San Francisco á þriðjudaginn. Um er að ræða iPod með breiðtjaldsskjá, GSM síma og nettengda græju.
Þetta þrennt var sameinað í eina vöru sem heitir iPhone, en nafnið hefur oft verið nefnt áður í orðrómasíðum makkaheimsins og ættu því margir að kannast við það nú þegar.
iPhone er í raun ekki sími eins og nafnið ber að kynna, heldur má í raun tala um hann eins og smátölvu með MacOS X stýrikerfinu, vafra, iPod/iTunes, Widgets og margt margt fleira. Merkilegast við símann er að sjálfsögðu að hann er án raunverulegra takka en allar aðgerðir byggjast á snertiskjá sem birtir skipanir eftir þörf.
Snertiskjárinn getur meira en bara tekið við einfaldri snertingu með einum fingri sem þýðir að hægt er að framkvæma flóknari aðgerðir með ýmsum hreyfingum eins og að stækka myndir fram og tilbaka með tveimur puttum sem dregnir eru saman eða öfugt.
iPhone er fyrsti síminn sem hefur upp á að bjóða alvöru internetkerfi; vafra og html email eins og gengur og gerist í venjulegum tölvum í dag.
Tvær útgáfur eru til af símanum; með 4GB og 8GB flash-minni. Síminn verður ekki fáanlegur fyrr en í júnímánuð í BNA og seinnipart ársins í Evrópu. Ekki er vitað um verð á Evrópumarkaði eins og stendur en búast má við að það verði í kringum €500/€600.

Steve Jobs kynnti einnig aðra vöru sem hefur í raun verið kynnt áður, en það er iTV. iTV fékk nýtt nafn og heitir í dag Apple TV. Þessi græja gerir mönnum kleift að streyma tónlist, ljósmyndum, kvikmyndum og þáttum þráðlaust beint úr tölvunni sinni (PC eða Mac). Til þess að geta notað þetta tæki þarf að hafa iTunes forritið.
Apple TV er með 720p upplausn og hefur ýmsa tengimöguleika; HDMI, Component og að sjálfsögðu analog og digital hljóðútgang. Einnig hefur það Ethernet tengi og USB.
Verðið á Apple TV hér á landi verður um 39.990 krónur.
Airport Extreme Base Station fékk víst enga athygli eða kynningu á Macworld, en það hefur loks verið uppfært og hönnun þess breytt til muna. Það hefur nú að geyma bæði 802.11b, g og n staðlana en sá síðarnefndi er um 5x hraðvirkari en sá mest notaði í dag (802.11g). Drægnin er einnig mun meiri en á fyrri útgáfu. Verð er í kringum 19.900 krónur á Íslandi.
Lesið meira um vörurnar á eftirfarandi slóðum:
Apple iPhone
Apple TV
Airport Extreme Base Station




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Alltaf sami okurprísinn hér á landi, kaupi apple tv alveg örugglega í USA og hvet alla til að gera slíkt hið sama
Prísarnir í Apple IMC eru að meðaltali 30% hærri fyrir utan vsk
Verðið er líka miðað við með 33% vörugjaldi tollsins og aldrei hægt að miða við USA verð. Held að Íslendingar munu aldrei gera sér grein fyrir því að USA markaður ≠ Evrópumarkaður
það er ekkert vörugjald til að tala um á tölvum.. ég hef oft flutt inn tölvur..
Geturðu sýnt fram á þetta vörugjald?
Það er ekkert verið að tala um tölvur…