
Talið er að Apple muni í framtíðinni, jafnvel á næsta ári, bæta við NAND flash minniskubb í allar MacBook tölvur sínar til að veita lengri rafhlöðuendingu og yfirleitt hraðari ræsitíma.
Fyrir þá sem ekki vita þá er flash til dæmis notað í mp3-spilurum á borð við iPod shuffle og iPod nano og notar það mun minni orku og þolir meira hnjask en harðir diskar. Flashminni er einnig notað í s.k. USB minnislyklum sem hægt er að kaupa í ýmsum stærðum.
Intel áætla að innsetja flash minni í næstu kynslóð fartölva en talið er að það geti veitt allt að tvöfalt hraðari vinnslu hvað varðar stýrikerfi, ræsingu forrita, vekja tölvuna frá svefni og aðrar aðgerðir tengdar almennri vinnslu stýrikerfisins.
Sýndur var munur á þessu tvennu, þ.e. tvær vélar með sama innihaldi nema ein með 256MB flashminni. Niðurstaðan var sú að fartölvan útbúin með flash ræsti sig tvöfalt hraðar heldur en hin. Að sjálfsögðu er hægt að nota stærri kubba í þetta sem gæti þá veitt mun betri afköst.
Trúlegt er að Apple munu fyrst koma með uppfærslu á MacBook fjölskyldunni fyrir áramót áður en þær verða útbúnar með NAND flash árið 2007.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
0 svör við “MacBook með flash minni?”