Haltu bjórnum köldum við tölvuna

USB_beverage_chiller

Fyrir þá sem stunda drykkju við tölvuna, hvort sem um er að ræða alkóhól eða venjulegan gosdrykk, geta glatt sig yfir því að CoolIT Systems hafa gefið út kæliplötu sem tengist við USB-tengi tölvunnar.

Um er að ræða litla plötu þar sem drykkurinn er lagður á sem notar rafmagn tölvunnar til þess að halda honum svölum. Sniðugt fyrir þá sem vilja hafa síðustu sopana kalda og tilbúnir að borga $29.99 fyrir það!

www.coolitsystems.com

6 svör við “Haltu bjórnum köldum við tölvuna”


  1. Gravatar Icon 1 Halldór Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 16:54

    Eða bara segja hleðslutækið af MacBookinni á það til að kæla það aðeins :tunga:

  2. Gravatar Icon 2 Valgeir Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 20:27

    Þetta er fínt tæki, þó að maður sé oftast búinn með drykkinn áður en að hann nær að kólna.

    Verð að segja að þetta kom út fyrir mörgum mánuðum og var búið að vera úti frekar lengi áður en að ég keypti þetta :\

  3. Gravatar Icon 3 Valgeir Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 21:55

    “og var búið að vera úti frekar lengi áður en að ég keypti þetta :\”

    Eh, ég keypti þetta semsagt fyrir mörgum mánuðum og þá var þetta búið að vera lengur úti.

  4. Gravatar Icon 4 Kristófer Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 22:09

    Mig minnir að þeir i BT séu búnir að vera að selja þetta frekar lengi

  5. Gravatar Icon 5 Helgi Þriðjudagur 1. ágúst 2006 kl. 00:26

    Vinur minn keypti svona í elko, snilldar græja.:yep::yep:

  6. Gravatar Icon 6 Orri Þriðjudagur 1. ágúst 2006 kl. 13:26

    Þeir ættu kannski næst að búa til tæki sem kælir tölvuna…

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!