iPhone í ágúst?

iphone bulliPhone hefur verið fjallað um nokkuð oft og lengi á netinu, en samkvæmt orðróm er hann talinn vera kynntur í næsta mánuði. Síminn mun vera samanblanda af iPod og farsíma.

Engadget segir frá að ljósmyndari, sem tekur reglulega myndir af Apple vörum, hafi tekið myndir fyrir þá af einum flottasta og kynþokkafyllsta GSM síma sem hann hafi séð að sögn vinar hans.

Þessu skal þó taka með fyrirvara þar sem þetta er ekki í fyrsta sinn sem talið er að svo kallaður iPhone verði kynntur, eða hvað hann mun þá heita ef hann verður einhvern tímann kynntur!

Þá langar mig að forvitnast um hvað ykkur finnst um að Apple geri farsíma með iPod-möguleikum? Mynduð þið hugsanlega fjárfesta í þannig græju?

www.engadget.com

19 svör við “iPhone í ágúst?”


  1. Gravatar Icon 1 Kristófer Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 10:28

    Mér finnst bara sniðugt að Apple sé að gera það en bara ef þeir standa einir að því t.d. var ROKR ekki flottur sími

    Ef Apple síminn verður sjúklega flottur og verður á svipuðu verði og iPod þá eru frekar miklir möguleikar að ég fá mér ”iPhone”

  2. Gravatar Icon 2 Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 11:37

    sko … uuu … já!

    ég vona bara að þetta verði ekki eitthvað svona kjaftæði að hann komi ekki út á GSM (evrópu) heldur bara amrískt og eitthvað kjaftæði.

    þá verð ég reiður… urr.

  3. Gravatar Icon 3 Maggi Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 12:06

    Sá á NFS í gær einhverja umræða um sona i-pod/síma græjur, hvort þetta væri eitthvað á leiðinni. Sá sem var talað við sagði að það væri líklega helst batterýin sem væru að standa í vegi fyrir því. Það þarf að vera kveikt á símanum allan daginn og það tekur slatta af batterý-i að tala í hann og svo eyðir náttúrulega hellings batterý-i að vera að hlusta á tónlist, hvað þá að horfa á video líka.

  4. Gravatar Icon 4 Halcon Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 12:14

    Spurning hvað þeim tekst að nýta batterýið með OLED og flash minni.

    og já, ef þetta er að koma og er flott græja þá held ég að sé kominn tími til að skipta út gamla 6230 gemmsanum :)

  5. Gravatar Icon 5 asgeir Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 13:13

    myndi pottþétt fá mér, en iphone er samt alveg glatað nafn:???:

  6. Gravatar Icon 6 Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 13:48

    MacPhone

  7. Gravatar Icon 7 Kolbeinn K Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 13:50

    held að þeir noti iphone. Prófið bara að fara inn á
    http://iphone.org/

    hún fer með ykkur beint á apple.com… held að það gefi nokkuð sterka vísbendingu ;)

  8. Gravatar Icon 8 Kolbeinn K Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 13:57

    Sé að all margir halda að hann muni líta einhvernveginn svona út http://www.applele.com/pict_05iphone_r02.html

    Fleir myndir segja nokkurnveginn sömu sögu

    http://www.mobilewhack.com/images/iphone-shot1-400.jpg

    Hér eru líka margar skemmtilegar tillögur
    http://www.biip.no/default.aspx?section=articles&name=iphone

  9. Gravatar Icon 9 Geiri Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 15:43

    ekki spurning !

  10. Gravatar Icon 10 Bjöggi Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 16:06

    MacPhone, iPhone… alveg sama hvað það heitir. Bara að Apple hannar síma með iPod möguleikum er nóg fyrir mig :blikka:

  11. Gravatar Icon 11 Rúnar Ingi Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 16:44

    EN!

    Sími með ipod möguleika? Þýðir það ekki bara sími sem býður uppá afspilun á mp3 og hægt að plugga í heyrnatólum?

    Það er ekkert nýtt þannig lagað…afhverju ætti þetta að vera svona spennandi?

    Bara að pæla og pæla:tunga:

  12. Gravatar Icon 12 Bjarkovic Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 17:13

    iPod Pro :)

  13. Gravatar Icon 13 Bjarkovic Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 17:14

    Reyndar finnst mér mest spennandi að fá síma sem er með almennilega hönnuðu viðmóti!

  14. Gravatar Icon 14 Bjöggi Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 18:04

    Sammála Bjarkovic.

    Rúnar Ingi: hinir spila ekki protected AAC og þeir synca ekki við iTunes :)

  15. Gravatar Icon 15 Sunnudagur 30. júlí 2006 kl. 22:36

    sammála bjögga sem er sammála bjarkovic

    eitt það helsta sem ég horfi á í símum er notendaviðmótið … og ef apple púllar sína galdra á það ætti það að vera magnaður sími.

  16. Gravatar Icon 16 Gorpon Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 00:49

    Bjöggi skrifaði:

    “Rúnar Ingi: hinir spila ekki protected AAC og þeir synca ekki við iTunes :)

    …sem er Apple að kenna, ekki framleiðendum símanna.

    Ekki telja þetta til kostar hugsanlegs Apple síma…mónópólíutilburðir eru slæmir, hver sem stundar þá.

  17. Gravatar Icon 17 Krunka Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 08:26

    þegar ég var úti var alltaf verið að auglýsa síma sem þú gast sincað við iTunes … reyndar var það bara í gegnum eitthvað ákv. símafyrirtæki man ekki hvaða .. orange eða eitthvað minnir mig.
    Kom þetta aldrei hingað??

  18. Gravatar Icon 18 Bjöggi Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 08:36

    Jújú, mikið satt.. en hef bara ekki séð einn einasta GSM síma í dag sem hefur heillað mig eða fengið mig til að langa í einn. Ef einhver getur gert það þá er það Apple held ég. Sleppa innbyggðri kameru og setja inn ágætis iPod viðmót :)

    Það er líka ástæða fyrir því að ég nota iPod en ekki Creative eða aðra spilara. Ekki af því að “ég er neyddur til að nota iTunes”, heldur því ég vil ekki nota neitt annað, eins og er.. :blikka:

  19. Gravatar Icon 19 Gorpon Mánudagur 31. júlí 2006 kl. 09:42

    Ég vil frekar iPod en nokkuð annað, þar er ég sammála.

    En mér dettur ekki til hugar að kaupa tónlist af iTunes Music Store, af sömu ástæðu og að mér hefði aldrei dottið til hugar að kaupa vídeóspólur sem ganga bara í eina tegund af vídeótæki.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!