Kynning á nýrri tækni í Windows Vista endar illa

windows vistaMicrosoft ákváðu að sýna nýja viðbót í næsta stýrikerfi þess, Windows Vista, sem er „speech recognition“. Þessi gerð af tækni er svosem ekkert ný en hún virkar þannig að skipun er gefin tölvunni með tali og þá einnig hægt að láta hana skrifa texta án þess að nota lyklaborð.

Kynningin heppnaðist vægast sagt illa og virkaði í raun ekki á nokkrun hátt. Kynnirinn ætlaði að sýna hvernig hægt væri að skrifa í Word með því að tala, en hugbúnaðurinn tjáði það á allt annan hátt;

„Dear mom“ kom fram sem „Dear aunt“, eftir það vildi kynnir leiðrétta og sagði „fix aunt“ sem varð að „let’s set“. Eftir það vildi hann eyða út eftirfarandi orðum með því að segja „delete that“, en hugbúnaðurinn tjáði það sem „so“. Margar villur voru komnar á skjalið þannig að kynnirinn vildi „select all“ en út kom: „double the killer select all“.

Frábær hugbúnaður í gangi frá Microsoft sem virkar svona allsvakalega vel.

Fréttina er hægt að sjá ásamt broti af kynningunni hér fyrir neðan. Fréttakynnir tók samt fram að „Microsoft is not happy that we showed you this video“. Ekki kemur það manni á óvart, en ekki í fyrsta sinn sem maður sér fyrirtækið klúðra kynningum á Windows stýrikerfinu.

www.youtube.com

6 svör við “Kynning á nýrri tækni í Windows Vista endar illa”


  1. Gravatar Icon 1 Kristófer Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 11:05

    Þetta er bara Microsoft í hnotskurn:lol:

  2. Gravatar Icon 2 Maggi Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 12:56

    Þessi linkur er ekkert alveg að virka.

  3. Gravatar Icon 3 Kalli G Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 14:04
  4. Gravatar Icon 4 jont Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 17:02

    hahaha, er eina ordid yfir thetta:hlátur:

  5. Gravatar Icon 5 Murdoch Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 20:03

    Killer hugbúnaður!

  6. Gravatar Icon 6 Jonni Laugardagur 29. júlí 2006 kl. 22:49

    http://www.youtube.com/watch?v=IkeC7HpsHxo

    betri gæði og enginn texti fyrir ;)

    Annars þetta er snilld!

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!