Nýi iPad fær magnaða dóma

Miðað við hvað nýjasta kynslóðin af iPad býður uppá þarf maður varla að vera hissa á jákvæðum viðbrögðum frá helstu fjölmiðlunum.

Það merkilegasta við nýja iPad-inn er  að sjálfsögðu skjárinn því hann hefur að geyma fjórfalt fleiri pixla á sömu skjástærð og iPad 2. Þar að auki með fjórfalda grafíkgetu fyrri kynslóðar, sem verður að teljast nokkuð magnað.

Hér eru nokkrar útvaldar tilvitnanir frá ýmsum erlendum fjölmiðlum:

- “The third-generation iPad had a frame rate 1.6 times that of the iPad 2″
- 3rd Gen iPad almost identical physically to iPad 2
- Video quality of 1080p video recorded was “very good” even in low light
- “Remember how startling it was to go from one of those giant standard definition projector TVs to an HDTV? That’s what this is like.”
- Screen is a huge difference from iPad 2.
- Movies and photos are crystal clear
- “Once you see and use the new iPad, there will be no going back.”
- “I’m not being hyperbolic or exaggerative when I say it is easily the most beautiful computer display I have ever looked at.”
- Was able to use smaller font sizes to read books and email on 3rd Gen iPad vs iPad 2

Heimildir:
The VergeMacworld.com | AllThingsDTechCrunch Loop Insight | NYTimes.com

Ætlarðu að fá þér nýja iPad? Taktu þátt í könnuninni okkar hér til hliðar ->

Nýi iPad – Vídeó, myndir og hraði

Það virðist sem nokkrir í Asíu hafa fengið nýja iPad í hendurnar fyrir útgáfudag sem er á morgunn í útvöldum löndum. Því hafa myndir verið birtar á netinu af bæði tækinu sjálfu og svo myndir og vídeóupptökur sem hafa verið teknar á nýju græjunni. Þar að auki hraðaprófanir.

Hér má m.a. sjá samanburð – ein tekin á iPad (3. kynslóð) og hin á iPad 2.

Hér má sjá fyrsta myndbandið þar sem þriðja kynslóð iPad er tekin úr umbúðunum.

Það er athyglisvert að skoða skjáskot tekið á iPad með Retina skjá, því upplausnin er það há að myndin kemst ekki fyrir í fullri stærð á flestum tölvuskjám. Hér má sjá: skjáskot | ljósmynd (tekna á 5MP myndavélinni á iPad).

Annar notandi hefur gefið út myndband af iPad 2 og nýjustu gerðinni af iPad – hlið við hlið:

Að auki hefur Apple gefið út myndir og vídeó sem hefur verið tekið á nýja iPad. Þar eru hæstu mögulegu gæðin sýnd í litríkum myndum og einnig sýnt hvað hristingsvörnin skiptir miklu máli í nýju iSight myndavélinni.

Hér sjáið þið dæmi: www.apple.com/ipad/gallery

En nóg um það. Margir vilja einnig vita hver hraðamunurinn er á nýja iPad og fyrri kynslóð. Sjálfur örgjörvinn hefur ekki breyst en hins vegar hefur vinnsluminnið og grafíkkortið verið endurbætt til muna. Vinnsluminnið er tvöfalt stærra, 1GB í stað 512MB, og grafíkkortið fjögurra-kjarna. Þetta skilar sér 50-70% aukinn hraða í nýjustu GLBenchmark grafíkprófunum.

Svo er bara að bíða spennt/ur eftir 23. mars – því þá fáum við öll (sem búum á Íslandi) tækifæri til að handleika og prófa tækið hjá Epli.is!

Hið nýja móðurskip Apple

Apple hefur hafið framkvæmdir á nýjum höfuðstöðvum þar sem núverandi aðstaða er löngu orðin fullnýtt.

Það kemur ekki á óvart að nýju höfuðstöðvarnar verða stórglæsilegar og mjög dýrar í framkvæmd. Byggingin verður hringlaga með bognu gleri sem þarf að sérsmíða.

Byggingin mun hafa m.a. 246.193 fm. húsnæði fyrir skrifstofur, rannsóknir og þróunarstarfsemi, þúsund sæta kynningarsal, líkamsræktarsal og margt margt fleira. Hægt er að taka sérstakan strætó sem sækir starfsmenn að heiman í vinnuna og tilbaka. Bílastæðahús verður undir byggingunni.

Hér sjáið þið teiknaðar myndir af glæsihýsinu.

Apple kynnir uppfært Apple TV

Samhliða nýjum iPad kynnti Apple einnig uppfærslu á Apple TV síðastliðinn miðvikudag. Með þessari uppfærslu verður hægt að horfa á myndir og myndbönd í fullri háskerpu eða 1080p upplausn í stað 720p áður, samhliða því að byrjað var að selja 1080p myndefni í iTunes Store.

Einnig var kynnt nýtt uppfært notendaviðmót sem er bæði auðveldara og þægilegra í notkun, ásamt því að virka nú með iCloud, svo þú getir gengið að því vísu að allt þitt efni (úr tölvunni, iPad og iPhone) sé þar að finna. Svo mun iTunes Genius hjálpa þér að finna aðrar kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem þú gætir líklega haft áhuga á að sjá.

Fyrir utan allt það efni sem keypt er í iTunes Store mun líka vera hægt að nota iCloud til að færa þær DVD eða Blu-Ray myndir sem þú átt sem virka með iTunes Digital Copy og þaraðleiðandi hægt að flytja inn í iTunes.

Þess má þó geta að eigendur fyrri kynslóðar Apple (þ.e.a.s. annarrar) geta fengið alla þessa nýju fídusa, fyrir utan 1080p spilun með frírri hugbúnaðaruppfærslu sem hægt verður að nálgast með því að fara í Settings -> General -> Check For Updates.

Nýi iPad kemur til Íslands 23. mars!


Að öllum líkindum eru margir að huga að kaupum á nýja iPad og spenntir að ná eintaki sem fyrst.

Góðar fréttir – því nýi iPad verður fáanlegur á Íslandi föstudaginn 23. mars!

Verð á nýja iPad verður það sama og var á iPad 2 og hefur lítill fugl hvíslað að eyra einhvers hér á Maclantic að forpantanir eru hafðar hjá umboðsaðila Apple á Íslandi, Epli.is, og endursöluaðilum!

Því er um að gera og leggja inn pöntun sem fyrst til að ná í eintak úr fyrstu sendingu (já eða bara mæta áður en verslanir opna 23. mars!).

Hvað er svona merkilegt við Retina skjá?

Apple kynnti í gær nýjan iPad með Retina skjá og vakti það mikla lukku um heim allan. Eigendur iPhone 4 og 4S vita án efa hvað um er að ræða, en við skulum aðeins skoða hvað þetta í raun og veru þýðir.

Apple byrjaði að nota orðið Retina þegar það kynnti iPhone 4 og núna nýja iPad, skilgreiningin hjá Apple er að skjárinn er það skýr að nánast ómögulegt er að greina pixla á skjánum með berum augum – sem þýðir einfaldlega bestu mögulegu gæði fyrir hið mennska auga.

Augu okkar eru að sjálfsögðu mismunandi og Apple segir að miðað sé við að horft sé á tækið úr eðlilegri fjarlægð (þ.e. í fjarlægð sem okkur finnst í raun þægilegast að nota græjuna).

Til að fá betri skilning á útkomuna getum við borið þetta saman við t.d. MacBook Pro fartölvuna. Minnsta MacBook Pro hefur að geyma 1280 x 800 pixla á 13,3-tommu fleti. Það gerir 1.024.000 pixla.

Nýi iPad hefur hins vegar að geyma 2048 x 1536 pixla á 9,7-tommu fleti. Það gerir samtals 3.145.728 pixla, eða rúmlega þrefalt fleiri pixla en á MacBook Pro vélinni! (Til gamans má geta hefur 27″ iMac upplausnina 2560 x 1440, sem gerir 3.686.400 pixla en hún er líka 17,3-tommum stærri en iPad í skjástærð).

Þá er bara að ímynda sér hvernig öllum þessum pixlum er svo þjappað saman á minni flöt (9,7-tommur)!

Texti, ljósmyndir og vídeó í HD njóta sín virkilega vel á skjá sem þessum – skýrari mynd hefurðu að öllum líkindum aldrei séð með berum augum!

Tilhlökkunin er því mikil hjá notendum og þá sérstaklega leikjaunnendum sem bíða óþreyjufullir eftir nýjum leikjum sem nýta sér afl og getu A5X örgjörvans og grafíkkortsins, og Retina upplausnina sem nýi iPad hefur uppá að bjóða. Ekki skaðar að geta notað Apple TV með 1080p og spila þráðlaust í sjónvarpið í mögnuðum gæðum!

Til fróðleiks er hér nærmynd af iPad 2 og nýja iPad (frá The Verge) – smelltu á myndina til að stækka

Apple kynnir nýjan iPad

Rétt í þessu kynnti Apple nýjustu gerð spjaldtölvu sinnar í Yerba Buena Center for the Arts í San Fransisco. Hinn nýi iPad er stórlega endurbættur frá forvera sínum á flest öllum sviðum og hér verður farið yfir það:

- Nýr skjár með hreint ótrúlegri upplausn eða 2048 x 1536 pixla (264 ppi) sem eru fleiri en á nokkrum öðrum skjá á raftæki. Borið saman við besta háskerpu sjónvarp með 1920 x 1080 pixla upplausn hefur hinn nýi iPad yfir milljón fleiri pixla og fjórum sinnum fleiri en iPad 2. Á skjánum mun texti, ljósmyndir og allt annað líta mikið skýrar og betur út og þarf virkilega að sjá skjáinn með eigin augum til þess að gera sér grein fyrir gæðum skjásins.

- Ný og stórbætt fjögurra kjarna grafík. Örgjörvinn, nefndur A5X, hefur að geyma 2-kjarna A5 örgjörva og 4-kjarna grafík sem mun keyra og styðja við nýja skjáinn og stuðla að því að allt keyri enn hraðar en áður. Borinn saman við Nvidia Tegra 3 örgjörvann sem finnst í mörgum öðrum spjaldtölvum sem keyra Android er A5X örgjörvinn frá Apple 4 sinnum öflugri en 2 sinnum sá sem fannst í iPad 2. Gefur hann möguleika á mikið betri og betur útlítandi leikjum.

- Ný og betri iSight myndavél að aftan tekur upp sömu frábæru tækni og myndavélin úr iPhone 4S ásamt fídusum eins og auto-exposure, auto-focus, auto-face detection, AF-lock og sjálfvirka hristingsjöfnun (stabilization). Einnig tekur myndavélin nú upp myndbönd í glæsilegri 1080p háskerpu upplausn. Ekki var minnst á FaceTime myndavélina að framan.

- Nú verður einnig hægt að lesa inn texta, svipað og með iPhone, í stað þess að slá hann inn með lyklaborðinu. Mun þetta virka með því að ýta á nýjan hnapp á lyklaborðinu og lesa síðan inn boð eða texta. Tekið skal fram að ekki er um Siri að ræða. Mun þetta virka með ensku, frönsku, þýsku og japönsku til að byrja með.

- Nýi iPad mun hafa stuðning við 4G LTE, sem skilar sér í blossandi gagnahraða eða allt að 72 Mb/sek, en þó aðeins þar sem slík símkerfi eru fyrir hendi. Býður 4G upp á margfaldan hraða á við 3G og hlaðast myndir og myndbönd þaraðleiðandi niður á margfallt styttri tíma. iPad mun áfram hafa stuðning við 3G. Aldrei hefur raftæki verið selt með stuðningi með eins mörg kerfi og þessi spjaldtölva sem mun hafa stuðning við 4G LTE eins og áður kom fram, tvær gerðir af 3G (3G HSPA+ OG DC-HSDPA) ásamt WiFi og Bluetooth. Líka mun iPad hafa Hotspot (eða Heitsreits) mögulega þar sem símafyrirtæki leyfa.

Með allt þetta mun hinn nýi iPad (aðeins iPad takið eftir) hafa sömu frábæru endingu og forveri sinn eða 10 klukkustundir við venjulega notkun og 9 með 4G. Einnig mun hann halda sinni sömu þykkt og þyngd eða 9.4 mm og 680 grömm. Mun nýr og endurbættur iPad vera á sama verði og áður og koma út í 10 löndum, bæði í hvítu og svörtu þann 16. mars næstkomandi, og síðan til Íslands þann 23. mars.

Horfðu á kynninguna – Slóð að vídeó

http://events.apple.com.edgesuite.net/123pibhargjknawdconwecown/event/index.html

Apple kynning í dag kl. 18 – Nýr iPad og Apple TV?

Eins og svo margir vita þá verður Apple með kynningu í dag sem tengist iPad.

Orðrómurinn hefur verið gífurlegur síðastliðna daga og ýmsar upplýsingar um hið nýja tæki lekið á stærstu fréttasíðurnar. Þar hefur m.a. komið fram að iPad 3 (eða HD?) verði kynntur með Retina skjá (með fjórfalt fleiri pixla en á iPad 2), nýjum tveggja-kjarna örgjörva og öflugri grafík. Að auki má búast við nýju 1080p Apple TV og $39 vöru sem enginn veit hvað er. Þar má giska á aukahlut fyrir nýja iPad-inn eða hugsanlega fyrir nýja Apple TV?

Það kemur allt í ljós í kvöld kl. 18:00, en því miður verður kynningin ekki í beinni útsendingu á Apple.com

Notendur geta þó huggað sig yfir því að nokkrar fréttasíður verða með fréttaskrif í beinni á kynningunni og hefur m.a. The Verge auglýst að þeir verði á staðnum.

Hægt er að fylgjast með þeim á live.theverge.com

Apple kynnir OS X Mountain Lion

Hið væntanlega stýrikerfi.

16. febrúar síðastliðinn kynnti Apple nýja útgáfu af Mac OS X stýrikerfinu (nú bara OS X). Mun OS X 10.8 bera nafnið Mountain Lion og var það kynnt til sögunnar öllum að óvörum, fyrir utan nokkra útvalda sem fengu einkakynningu frá sjálfum Phil Schiller vikunni fyrr.

Með Mountain Lion heldur Apple áfram þeirri umdeildu vegferð sinni að samrýma og tengja OS X og iOS stýrikerfin, með að innleiða ýmsar smávægilegar breytingar og fídusa sem eru stórlega innblásnir af iOS. Hefur Apple líka ákveðið að hér eftir muni ný útgáfa af OS X koma út á hverju ári eða með mun styttra millibili en hingað til.

Með þessari 9. útgáfu stýrikerfisins koma ýmsar nýjungar eins og:

- Notes og Reminders sem mun virka eins og þekkist á iPad og iPhone

- Style Sheets sem gerir fólki kleift að deila nánast hverju sem er, eins og myndum, myndböndum eða vefsíðum á Twitter, Vimeo o.s.frv. (en þó hvorki Facebook né Youtube)

- Stórlega uppfært iChat, nú Messages sem mun m.a. virka með iMessage

- Notification Center, svo maður missi ekki af neinu

- Game Center sem mun halda utan um allt sem tengist leikjunum þínum úr Mac App Store

- Og mun allt þetta allt synca við öll iOS tækin þín í gegnum iCloud

- Svo mun langþráð Airplay Mirroring gera fólki kleift að deila nánast hverju sem sést á skjánum beint yfir á flatskjáinn þráðlaust í gegnum Apple TV.
Einnig munu nöfn hina ýmsu forrita vera samrænd systkinum sínum á iOS þannig að iCal verður Calendar, Address Book – Contacts, iChat – Messages o.s.frv og að lokum á Gatekeeper að stuðla að meira öryggi notenda með því að gefa fólki kost á að leyfa einungis uppsetningu á forritum sem koma annaðhvort úr Mac App Store eða frá sannreyndum hugbúnaðarþróendum og banna allt annað sem gæti hugsanlega skaðað tölvuna.

Þess má þó geta að þetta er einungis sýnishorn af því sem koma skal og gæti því vel verið að OS X Mountain Lion muni hafa upp á eitthvað fleira að bjóða þegar það kemur út næsta sumar, einungis í Mac App Store að nýrri venju fyrir óþekkt verð.




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!